Tröllvaxin útgáfa af s’mores (kexkökusamloka með súkkulaði og grilluðum sykurpúða á milli) sem er einkar vinsæl í útilegum og sumarbústaðarferðum. Hér geta allir tekið þátt í að grilla sykurpúðana og svo þarf að hafa hraðar hendur við að koma þeim á kökuna og klemma hana saman áður en allir geta nælt sér í bita.