Lóla Flórens er göldróttur staður við Garðastræti þar sem vinkonurnar Íris og Svava opnuðu stað á horninu sem sameinaði þeirra áhugamál; vintage, sjálfbærni, hvítan galdur og að skála með vinkonunum. Við litum í heimsókn og fengum að kynnast konunum á bak við Lólu Flórens.