Listakonan Lilý Erla Adamsdóttir kynnir línu af handunnum tuftuðum gólfmottum á HönnunarMars. Innblásturinn sótti hún í náttúruna; heiðalyng, mosa og íslenskar bergtegundir. Hægt verður að panta mottu úr línunni hjá Lilý en framleiðslan verður staðbundinn, hæg og handgerð. Sýningin er unnin í samstarfi við Sjöstrand Ísland.