Gott er að huga að ýmsu þegar við bókum förðun og hárgreiðslu fyrir stóra daginn. Vikan ráðfærði sig við Björgu Alfreðsdóttur förðunarfræðing og hana Telmu Erlendsdóttur hársnyrtisvein til að gefa okkur nokkur góð ráð hvað þetta varðar og til að sýna okkur fallega og klassíska förðun og hárgreiðslu.