Í notalegri kjallaraíbúð við Hlíðarveg í Kópavogi búa þau Björg Máney Byron Magnúsdóttir og Arnar Þór Hafsteinsson ásamt átta mánaða syni þeirra, Arthúri Byron Arnarssyni. Heimili þeirra er stílhreint og skandinavískir straumar svífa þar yfir vötnum. Björg hefur gaman af því að stússast í svokölluðum DIY verkefnum og sýnir gjarnan frá því sem hún er að vinna í hverju sinni á samfélagsmiðlum. Skemmtilegast þykir henni þegar einhver saga er á bak við hlutina sem prýða heimilið.