Íslenska hvítkálið er alltaf jafngott. Hér höfum við stóra bakaða báta með góðu grillkryddi og ólífuolíu, bakaðir á steypujárnspönnu en einnig er tilvalið að grilla þá. Gyros-kryddblandan kemur svo skemmtilega
á óvart og gefur réttinum svolítið sterkt kikk. Þetta er hið fullkomna meðlæti.