Dagsgömul croissant eru ef til vill ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann til að bjóða upp á í sparilegum
jóladögurði. Þessi croissant-baka slær hins vegar alltaf í gegn og í hana má gjarna nota dagsgömul smjördeigshorn. Bökuna má líka útbúa deginum áður og stinga henni svo í ofninn þegar líður að árdegisverðinum.