Sigríður Víðis Jónsdóttir valdi sér starfsvettvang sem er ekki á allra færi. Hún hefur unnið við upplýsingagjöf tengda hjálparstarfi og verið sjálfstætt starfandi blaðamaður og þá lagt áherslu á að segja sögur fólks sem býr við ómanneskjulegar aðstæður. Hún hefur ávallt verið haldin mikilli útþrá og ferðast til landa, utan alfaraleiða og oft komið á staði sem eru að jafna sig eftir langvarandi átök eða einræðisstjórnarfar. Hún sendi nýlega frá sér bók, Vegabréf: Íslenskt, þar sem lesandum hér á landi gefst tækifæri á að upplifa þau forréttindi að alast upp og búa á Íslandi miðað við mörg önnur lönd.