Þessi er dásemd. Hér er lítið mál að skipta butterscotchhnöppunum út fyrir hefðbundna súkkulaðihnappa, dökka, ljósa eða hvíta. Það má líka nota venjulegan sykur í stað púðursykurs í marensuppskriftinni og þannig leika sér með samsetningar þar til hver og einn finnur sína fullkomnu köku.