Brynhildur Björnsdóttir ræðir í bók sinni, Venjulegar konur, við sex íslenskar konur sem hafa verið í vændi, konur sem bera sára reynslu sína ekki utan á sér og lýsa aðstæðum sem aldrei ættu að viðgangast. Jafnframt kannar hún fyrirbærið vændi frá ýmsum hliðum, ræðir við fagfólk sem vinnur með þolendum og varpar kastljósinu á kaupendur sem bera mestu ábyrgðina með því að viðhalda eftirspurninni. Brynhildur er höfundur mánaðarins í Bókasafni Hafnarfjarðar og mun ræða bókina þriðjudaginn 27. september kl. 16.15.