Nýverið heimsóttum við Sesselíu Dan Róbertsdóttur sem býr í nýrri íbúð við Þúfulæk á Selfossi ásamt kærasta sínum, Gunnari Bjarna Oddssyni. Sesselía er mikill fagurkeri og fékk mikla útrás fyrir sköpunarkraftinn við að koma sér fyrir á nýju heimili. Við fengum Sesselíu til að svara nokkrum spurningum.