Vörurnar frá It Cosmetics hafa slegið í gegn og sannað vel ágæti sitt. Þær gefa góðan raka, fallega og jafna áferð, en vörurnar eru þróaðar af húðlæknum. Nýlega sendi vörumerkið frá sér nýtt CC-serum nude glow fyrir andlit sem gefur miðlungs þekju og ljóma og einnig frábæran balm-hreinsi. Við fundum fleira nýtt og spennandi, veganvörur og pallettu-box ásamt maskara með serumi, hver vill það ekki?