Andrea Kolbeinsdóttir var valin langhlaupari ársins á hlaup.is í kvennaflokki í fyrra. Hún hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma og sigraði öll keppnishlaup sem hún tók þátt í á síðasta ári. Það voru ekki bara götuhlaup sem drógu Andreu út heldur einnig utanvegahlaup á fjöllum. Nú er Reykjavíkurmaraþonið að skella á og að sjálfsögðu tekur hún þátt en okkur lék forvitni á að vita hvað liggi að baki slíku metári og hvort hún ætti einhver góð ráð handa öðrum.