Gleðigangan sem er hápunktur Hinsegin daga leggur af stað frá Hallgrímskirkju kl.14 laugardaginn 6. ágúst. Í göngunni sameinast hinsegin fólk í einum hópi ásamt fjölskyldum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli.