Frá örófi alda hafa fallegir kristallar og steindir í náttúrunni heillað menn. Fegurð þeirra er slík að fljótlega fóru menn að eigna þeim tiltekna krafta. Sumir vernduðu gegn illum öflum, aðrir voru hentugir til að auka mönnum visku, enn aðrir til að laða til sín ást og vináttu og svo voru lækningasteinar. Við vorum ekki ein um að trúa á lækningamátt steina og steinda og enn í dag trúa menn á krafta þeirra, meira að segja stjörnurnar í Hollywood.