Úrvalið af kynlífstækjum er endalaust, svo mikið að það er hægt að verða alveg ringlaður þegar maður stendur frammi fyrir því að kaupa sér eitthvað til að krydda kynlífið. Þegar eitt slíkt er valið velta líklega flestir fyrir sér hvað græjan kostar og hvernig dóma hún hefur fengið frá öðrum kaupendum. Þetta skiptir auðvitað máli en annað sem spilar stóran þátt í því hvaða kynlífstæki hentar manni er stjörnumerkið manns.