Það er óhætt að segja að það sé af nógu að taka þegar kemur að matarmenningu í London. Framboðið af flottum veitingastöðum er ótrúlega mikið og raunar þannig að auðvelt er að fá valkvíða. Hér hef ég tekið saman nokkra góða veitingastaði til að vonandi auðvelda einhverjum lesendum sem eru á leið til London lífið og lagði áherslu á veitingastaði sem sérhæfa sig í vegan mat eða bjóða upp á spennandi úrval fyrir grænkera.