Veitingastaðurinn Finnsson Bistro í Kringlunni er sannkallaður fjölskyldustaður en það eru systkinin Klara Óskarsdóttir og Finnur Óskarsson sem reka hann ásamt foreldrum sínum, Óskari Finnssyni og Maríu Hjaltadóttur. Helstu áherslurnar hjá fjölskyldunni eru að bjóða upp á ljúffengan mat á sanngjörnu verði í notalegu umhverfi og veita góða þjónustu.