Við fengum Ragnheiði Ingunni keramíkhönnuð til þess að gera skemmtilega páskaskreytingu fyrir okkur sem er mikið í hennar anda en hún hefur lengi verið viðloðandi leirinn. Hún situr meðal annars í stjórn Leirlistafélags Íslands og var ein af þeim sem tóku þátt í stofnun Hönnunarmiðstöðvarinnar og HönnunarMars.