Hneyksli í mjög svo breskum anda er yfirskrift sjónvarpsþáttaraða á BBC. Fyrst fengu menn að kynnast Jeremy Thorpe og ástmanni hans en um jólin var sýnd sería er byggir á lífi Margaret Campell hertogaynju af Argyll. Skilnaður hennar og hertogans var tilefni ótal forsíðufrétta í slúðurblöðum jafnt sem fréttamiðlum í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar og Margaret var kölluð the dirty duchess eða dónalega hertogaynjan.