Það er bjartur og fallegur dagur í byrjun nóvember þegar blaðamaður Vikunnar gengur á fund völvunnar til að forvitnast um það hvað nýja árið beri í skauti sér. Hún leggur spilin á borðið og rýnir í kristalskúluna áður en hún hefur upp róminn um það sem hún sér í þeim og skilaboðin sem henni eru send frá handanheimum.