Björk Jónsdóttir söngkona er mikið fyrir góðar upplifanir og hefur yfirleitt hæfilega mikið fyrir jólunum. Hún hefur þó gaman af að baka og hafa til eitthvað gómsætt með kaffi handa gestum. En auðvitað leikur tónlist lykilhlutverk þegar kemur að því að skapa jólaandann.