Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur þekkja flestir en hún hefur starfað í útvarpi í fjölmörg ár. Hún var tíu ára þegar hún ákvað að verða útvarpskona og hefur aldrei séð eftir því. ,,Ég er alin upp í Útvarpinu á Skúlagötu 4. Þar fylgdist ég með öllum göldrunum og öllu þessu frábæra útvarpsfólki og þeim sköpunarkrafti sem fylgir því að vinna í fjölmiðlum. Svo er ég það heppin að ég vann með foreldrum mínum og pabbi var auðvitað minn besti kennari og það sem hann sagði var, að allir hefðu sögu að segja og ekki mætti gleyma að hlusta á þögnina.“