Eitt það leiðinlegasta sem ég hef lent í í rúminu, fyrir utan að liggja þar með ælupest, er þegar smokkurinn týndist inni í mér. Já, hann rann af félaganum og fór á flakk. Ég uppgötvaði það ekki fyrr en að kynlífinu afstöðnu og þegar ég spurði gaurinn hvar smokkurinn væri, varð hann eitt spurningarmerki í framan og sagðist ekkert vita um hann.