Fyrir fjórum árum gerði ég alvarleg mistök, þau verstu sem ég hef gert um ævina. Ég hélt fram hjá manninum mínum. Hann veit ekki af þessu. Ég áttaði mig strax á að þetta var ekki það sem ég vildi og ákvað að ég myndi gera allt sem ég gæti til að laga samband mitt við manninn minn en sú ógn vofir alltaf yfir mér að hann frétti hvað gerðist þetta örlagaríka kvöld.