Einu sinni fyrir mörgum, mörgum árum fórum við tvær fjölskyldur og ein frænka í sumarbústaðaferð, ætluðum að verja saman notalegri helgi, grilla og njóta þess að ganga um í fallegri náttúru. Þegar við loks komumst á áfangastað urðum við fyrir hálfgerðu áfalli sem samt átti eftir að verða mjög svo til góðs og hafa dásamlegar afleiðingar í för með sér.