Nokkur ár voru liðin frá því ég skildi við manninn minn þegar vinkona mín hvatti mig til að prófa Tinder, app fyrir fólk í leit að rómantísku sambandi, ýmist til frambúðar eða ekki. Fljótlega kynntist ég Villa sem var ekki bara ótrúlega myndarlegur, heldur virtist hann afar hrifinn af mér.